Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Þórbergssetur

29.11.2008

Aðventan í Suðursveit

Á morgun fyrsta sunnudag í aðventu verður þjóðleg dagskrá í Þórbergssetri þar sem kynntar verða nýútkomnar bækur og fjallað um alþýðumenningu. Dagskráin er fjölbreytt, m.a. er heimafengið efni úr sjóði minninganna þar sem lýst er afreksför Ingimars Bjarnasonar á Jaðri og Bjarna Þórhallssonar á Breiðabólsstað í Hvannadal um hávetur. Einnig hafa ljóðskáld af Austurlandi boðað komu sína og það verður myndasýning frá fáförnum slóðum norðan Vatnajökuls.Skaftfellskum hagyrðingum hefur verið boðið á staðinn með eigin ljóð og Pálína Þorsteinsdóttir í Svínafelli les ljóð eftir föður sinn Þorstein Jóhannsson skólastjóra.

Veitingar eru í boði. Allir eru velkomnir . Það er gaman að taka sér bíltúr um sveitirnar á vetrardegi og veðurspáin virðist ekki ætla að hamla för að þessu sinni.

Dagskránna er að finna í viðburðir

Kaffiveitingar verða í hléi og séra Einar G. Jónsson lífgar upp á jólastemninguna og sest við píanóið.









Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica