Menning
Njála fyrir börn
Njála fyrir börn
Njála fyrir börn

20.11.2008

Njála fyrir börnin - sýning á myndskreytingum Margrétar E. Laxness

21. nóvember til 4. desember í Nýheimum

Í hádeginu, föstudaginn 21. nóvember opnar sýningin Njála fyrir börnin í Nýheimum. Myndirnar eru eftir Margréti E. Laxness úr bókinni Njála í endursögn Brynhildar Þórarinsdóttur.
Njála er stytting og endursögn á Njálssögu með glæsilegum myndskreytingum Margrétar. Með útgáfu þessarar bókar hefur Brynhildur séð til þess að Njáls saga er aðgengileg börnum og unglingum á auðlæsilegu máli og aukið þar með áhuga þeirra á Íslendingasögum. Bókin gefur ungum lesendum innsýn í fornsagnaheim þar sem mannlífið iðar af skemmtilegum frásögnum og hetjur ríða um héruð.

Mál og menning fékk Margréti til að myndskreyta Njálu, sem var fyrsta bókin í flokki endursagna sem nú eru orðnar 3, hinar eru Egla og Laxdæla. Fyrir þetta verkefni las hún Njáls sögu og aðrar bækur sem skrifaðar hafa verið um Njálu.

Markmið með myndskreytingum af þessu tagi er að aðalpersónurnar séu vel þekkjanlegar í gegnum söguna, hafa andlit þekkjanleg og að sögupersónurnar séu í eins fötum í gegnum söguna. Áhersla var lögð á mannlega þáttinn í myndunum, þar sem þetta var fólk af holdi og blóði eins og sjá má í brunanum á Bergþórshvoli þar sem konur og börn eru inni við og reyna að slökkva eldana. Þar sem bókin var fyrir börn var ekki lögð mikil áhersla á blóðugar bardagasenur fyrr en í lok sögunnar þar sem ?ég stóðst ekki mátið í lokin og gerði mynd bókstaflega af því augnabliki þegar höfuðið fær að fjúka af einum brennumanni.?

Myndirnar eru málaðar með blöndu af þekjulitum og vatnslitum þannig að þetta eru í raun í kringum 50 lítil málverk og satt að segja ansi tímafrekt verk.

Sýningin gefur börnum einnig innsýn í það hvernig myndir skapast út frá lestri og það hvernig þau geta skapað sínar eigin hugmyndir út frá lestri bóka.

Textabrotin sem fylgja myndskreytingum Margrétar á sýningunni voru valin út frá myndum til að túlka það sem þar fer fram og eru þau tekin úr Brennu-Njáls sögu, útgáfu Jóns Böðvarssonar. Bjarni E. Sigurðsson valdi textabrotin. Bjarni er fyrrum skólastjóri og kennari. Hann hefur mikið dálæti á Njáls sögu og hefur haldið fjölda erinda um söguna, auk þess sem hann leiðsegir hópum um Njáluslóðir.

Margrét er með fjölbreytilega myndlistarmenntun. Hún útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981 úr textíldeild með myndvefnað að aðal viðfangsefni, tók vefnaðarkennarapróf, sat einn vetur í Nýlistadeild MHÍ og var svo við nám í Listaakademíunni í Róm í tvö ár í málaradeild. Margrét kenndi módelteikningu í Myndlistaskólanum í Reykjavík og starfaði í við grafíska hönnun hjá Máli og menningu, síðar Eddu, við allt sem viðkemur bókahönnun, umbrot, kápugerð og myndskreytingar í um áratug. Frá árinu 2003 hefur Margrét verið sjálfstætt starfandi við grafíska hönnun og myndskreytingar, fyrir ýmis fyrirtæki en mest verkefni tengd bókaútgáfu. Þá hefur hún myndskreytt á annan tug barnabóka. Margrét hefur sérstakt dálæti á miðaldalist, handritaskreytingum og sótti ýmislegt í myndlist frá þeim tíma.

Sýningin í Nýheimum var fengin að láni frá Sögusetrinu á Hvolsvelli og verður opin til 4. desember á opnunartíma Nýheima.
Öll börn eru sérstaklega velkomin

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica