Tónlist fyrir alla
Mánudaginn 17. nóvember verða skólatónleikar í Hafnarkirkju í tengslum við "Tónlist fyrir alla".
Fjórir landsþekktir tónlistarmenn, þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Gunnar Hrafnsson, Björn Thoroddsen og Ásgeir Óskarsson flytja fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem flutt hefur verið bæði innanlands og utan. Dagskráin byggir á íslenska þjóðlaginu "Ljósið kemur langt og mjótt", en tónlistarmennirnir, undir forystu Ólafíu Hrannar fara með lagið í "reisu" um heiminn í stíl og látbragði.
Á sunnudagskvöld, 16. nóvember verða tónlistarmennirnir með tónleika á Hótel Höfn kl. 20.00. Þar verða, auk framangreinds prógramms, einnig flutt þekkt djasslög.
Allir velkomnir.
Aðgangseyrir kr. 1.500.-



