Menning
Bangsastund 2008
Bangsastund 2008
Bangsastund 2008
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

31.10.2008

Líf og fjör í Nýheimum

Það hefur verið líf og fjör í Nýheimum að undanförnu en nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar hafa síðustu tvær vikur heimsótt Bókasafn Menningarmiðstöðvar í þeim tilgangi að fá safnkennslu. Þá komu í heimsókn forvitnir nemendur úr grunnskólanum en þeir vildu kynna sér þá starfsemi sem fram fer í Nýheimum. Þeir heimsóttu Bókasafn, Háskólasetur, Nýsköpunarmiðstöð og Matís, fræddust um þjóðgarða og frumkvöðla og spurðu spekingslegra spurninga svo sem hvað væri mikið af snúrum á Háskólasetri. Ónákvæm talning leiddi í ljós að á einni lítilli skrifstofu voru að minnsta kosti 14 snúrur.

Haldið var uppá bangsadaginn í sögustundinni 30. október. Börnin tóku bangsana sína með sér á bókasafnið og var úrvalið af allavega furðudýrum mikið. Lúlli löggubangsi kom í heimsókn ásamt vini sínu Gunnari Inga lögreglumanni. Gunnar Ingi sagði börnunum frá óförum Lúlla í umferðinni og bað þau að passa sig vel og fara varlega. Börnin fengu svo að lokum endurskinsmerki frá Lúlla löggubangsa. Var hlutstað með mikilli athygli og sátu allir stilltir og hljóðir.

Á laugardögum í vetur kl. 11 verður lesin framhaldssaga fyrir börn á skólaaldri. Byrjað verður á bókinni Salómon svarti eftir Hjört Gíslason 1. nóvember.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica