Menning
Pitchfork Rebellion
Pitchfork Rebellion
Héðinn Björnsson og Fanney Kristjánsdóttir söngkona í Djass bandinu The Pitchfork Rebellion

31.10.2008

Spennandi tónleikar í Pakkhúsinu 1. nóvember

Folk-rock hljómsveitin Unoriginal Jon og jass hljómsveitin Pitchfork Rebellion verða með tónleika í Pakkhúsinu annað kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 19.00 og hvor hljómsveit spilar í amk.eina og hálfa klukkustund. Hægt er að mæta hvenær sem er á meðan tónleikunum stendur.
Hljómsveitin Unoriginal Jon var stofnuð snemma árs 2008 af þeim Sigga Palla, Rögga, Jóni Karli og Meisa. Þeir komu fram á nýliðinni Air Waves hátíð við góðar undirtektir.

Djass bandið The Pitchfork Rebellion var stofnað í ársbyrjun 2007 og er starfrækt frá nágrenni Húsavíkur. Í bandinu eru þau Fanney Kristjánsdóttir söngkona og Héðinn Björnsson, þúsundþjalasmiður og kazzoleikari en stundum slást í för með þeim tónlistarmenn og konur úr ýmsum áttum. Þau spila aðallega notaleg gömul sígild djasslög og hafa hlotið fádæma lof hvar sem þau hafa komið við.
Fjölmennum og eigum góða stund í Pakkhúsinu á laugardaginn.
Aðagangseyrir kr. 500.- Húsið opnar kl. 19.00

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica