Bókagjafir á Krakkakoti
Í morgun, 20.okt., fóru starfsmenn Menningarmiðstöðvar og gáfu krökkunum á Krakkakoti bækur um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex sem lenda í hinum ýmsu ævintýrum, sem gerast við rammíslenskar aðstæður. Vinirnir í bókunum fara meðal annars í bryggjuveiði, fjöruferð og eggjaskoðunarferð. Öll börnin á Krakkakoti fengu tvær bækur að gjöf og voru hæstánægt með gjöfina. Félagarnir í bókunum eiga heimasíðu þar sem hægt er að finna ýmsa skemmtilega leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og margt fleira og er skemmtileg afþreying fyrir alla grallara.
Við þökkum börnum og starfsfólki á Krakkakoti fyrir góðar og skemmtilegar móttökur. Starfsfólk Menningarmiðstöðvar



