Heimsókn í Nesjaskóla
Á föstudaginn fór Menningarmiðstöðin í heimsókn í Nesjaskóla til þess að segja krökkunum þar frá barnastarfinu sem að fer fram á sumrin. Krakkarnir fengu að vita ýmislegt um ferðirnar og tilganginn með þeim, sem er sá að læra um umhverfi og náttúru í gegnum leik. Siggi sagði krökkunum reynslusögur enda er hann búin að vera með í barnastarfinu frá upphafi og Gulla sagði þeim frá ferðuðum í sumar. Einnig fengu krakkarnir að segja frá sinni upplifun úr ferðunum sem þeir hafa farið í og þau fengu að sjá myndir úr nokkrum af ferðunum frá því í sumar eins og Steinaleitinni, fuglaskoðuninni og óvissuferðinni.
Heimsóknin heppnaðist vel og við vonumst til að sjá sem flesta krakka í barnastarfinu næsta sumar.
Kveðja starfsfólk Menningarmiðstöðvar



