Sumarstarfið í MMH
Í gær, 16. okt., var haldin uppskeruhátíð sumarlesturs og barnastarfs Menningarmiðstöðvar. Um 40 börn komu og fengu viðurkenningar fyrir þátttöku í sumarlestrinum. Einnig voru til sýnis myndir frá ferðum barnastarfsins í sumar og allir fengu köku og djús. Barnastarfið heldur áfram af fullum krafti næsta sumar og dagskrá næsta sumars verður auglýst á síðu Menningarmiðstöðvar þegar þar að kemur.
Hlökkum til að sjá ykkur. Starfsfólk Menningarmiðstöðvar.



