35 ára afmælissýning Karlakórsins Jökuls opnar í Nýheimum
Föstudaginn 26. september verður opnuð í Nýheimum glæsileg sýning Karlakórsins Jökuls. Sýningin spannar 35 ára sögu kórsins sem var stofnaður á bændafundi árið 1972 með þátttöku manna úr flestum hreppum Austur?Skaftafellssýslu. Karlakórinn hefur starfað óslitið síðan veturinn 1973 og verður farið yfir tónleikasögu kórsins á sýningunni þar sem sýndar verða myndir frá tónleikaferðum, árshátíðum og öðrum viðburðum á plasmaskjá. Einnig eru til sýnis persónulegir munir kórmanna, ásamt kórfötunum sem þeir hafa notað í gegnum tíðina. Hægt er að hlusta á allt útgefið efni Kórsins og má þar nefna diskana Það kom söngfugl að sunnan og Í jöklanna skjóli.
Sýningin er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar og Karlakórsins Jökuls og verður opin öllum næsta mánuðinn. Sýningin verður opnuð formlega kl 12:00 á hádegi á föstudeginum með ljúfum söng frá karlakórsmönnum sem mæta á staðinn af þessi tilefni.


