Ég hlakka mikið til að koma austur
Söngvarinn Friðrik Ómar heimsækir Hornfirðinga á tónleikaferð sinni um landið sem hefst í næstu viku og heldur tónleika í Hafnarkirkju föstudagskvöldið 19. september. Friðrik þarf vart að kynna en þessi 26 ára gamli söngvari hefur skipað sér í röð fremstu söngvara landsins á örskömmum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem Friðrik fer einn síns liðs um landið en hann hefur áður sungið með Guðrúnu Gunnarsdóttur og fylgt eftir þremur gullplötum þeirra sl. ár með því að syngja í kirkjum landsins. Að þessu sinni er það Grétar Örvarsson sem leikur undir á píanó og á efnisskránni eru meðal annars lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði vinsæl og fleiri þekkt dægurlög sem Friðrik hefur gaman af að flytja.
"Ég get lofað þægilegri stund fyrir alla aldurshópa og góðlög sem allir þekkja munu hljóma í hugljúfum útsetningum og kannski eitthvað eurovision líka, hver veit?" segir Friðrik og hlær.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og eru miðar aðeins seldir við innganginn. Miðaverð er 1500.-



