Menning
Paul Nedergaard
Paul Nedergaard
Paul Nedergaard

14.08.2008

Prófessor í arkitektúr heimsækir Höfn

Paul Nedergaard, prófessor við Arkitektaháskólann í Árósum, heimsækir Höfn í dag og á morgun. Heimsókn hans er undirbúningur ferðar sem nemendur arkitektaskólans fara í á næsta ári en Nedegaard hefur komið árlega til Íslands undanfarin ár með nemendahópa, þeir mælt upp og teiknað gamlar kirkjur og önnur söguleg mannvirki. Prófessorinn hefur ákveðið að setja Hafnarvíkur-Heppu verkefnið á dagskrá arkitektaskólans á næsta ári, 2009 og stefnir að því að koma austur með hóp nemenda til uppmælinga og rannsókna það sumar. Arkitektadeild Listaháskóla Íslands verður einnig í samstarfi um þetta verkefni. Þessi heimsókn er mikilvægur liður í uppbyggingu hafnarsvæðisins og mikill fengur að fá Nedergaard og nemendur hans hingað.

Árni Kjartansson arkitekt hjá Glámu-Kím og fleiri arkitektar eru með í för og mun hópurinn skoða gömlu byggingarnar við höfnina á morgun auk þess sem gömlu verbúðirnar í Mikley verða skoðaðar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica