Menning
New Iceland Youth Choir
New Iceland Youth Choir
New Iceland Youth Choir Höf: L.J. Henry

05.08.2008

Meðlimir barnakórsins eru allir af íslenskum ættum

Fimmtudaginn 7. ágúst heldur barnakór úr Vesturheimi The New Iceland Youth Choir tónleika í Nýheimum. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Kórinn var stofnaður 1999 og er um mart sérstakur hópur. Kórmeðlimir eiga ættir að rekja til Hornafjarðar, Skagafjarðar og Borgarfjarðar Eystri og nokkrir eru afkomendur Gunnars Pálssonar, en Páll var sonur Þórðar (Blinda) Pálssonar og Halldóru Högnadóttur, frá Horni.

Kórinn er á ferð í kringum landið og kom til landsins 29. júlí. Krakkarnir eru 7 til 16 ára og syngja á íslensku og ensku. Kórstjóri er Rosalind Vigfusson.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica