Vitaferð í Hvalnes
Í gær, 24.júní, var farið í aðra ferð sumarsins með barnastarfið í Menningamiðstöðinni. Farin var fjöruferð í Hvalnes með 25 káta krakka. Við fengum að skoða vitann, fórum í leiki, óðum í sjónum og borðuðum nesti og nutum sólarinnar í góða veðrinu. Á þriðjudaginn í næstu viku förum við svo í fjársjóðsferð á Melatanga sem verður auglýst nánar á föstudaginn á skjávarpinu. Munið eftir að skrá ykkur á bókasafninu og hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Starfsfólk menningarmiðstöðvar
Kveðja Gulla og co



