Listsýningar á Humarhátíðinni
Yfir Humarhátíðarhelgina verður Hlynur Pálmason með sýningu á ljósmyndum og málverkum, einskonar dagbókarbrot sem hann kallar "Sjónræn dagbók", á Graðaloftinu. Sýningin opnar fimmtudaginn 3. júlí. Hlynur hélt sýningu á loftinu í fyrra og muna margir eftir skemmtilegri sýningu þessa fjölhæfa listamanns. Sýningin verður opin í kringum Humarhátíð og er sölusýning. Auk sýningar Hlyns verður Sigurður Mar með ljósmyndasýningu á hafnarsvæðinu og aldrei að vita nema fleiri sýningar skjóti upp kolli.
Á Kaffi-horninu er Guðrún Ingólfsdóttir með málverkasýningu og er þetta önnur einkasýning hennar. Á sýningunni eru 34 verk, flest máluð á þessu ári. Myndefnið er sótt í okkar nánasta umhverfi. Sýningin á Kaffihorninu er opin fram eftir sumri og er sölusýning



