Menning
Rafstöðin í Þorgeirsstaðrá skoðuð
Rafstöðin í Þorgeirsstaðrá skoðuð

13.08.2003

Út í óvissuna

Óvissuferð var farin á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í gær og fóru 16 börn í ferðina. Ekkert þeirra vissi fyrirfram hvert leiðin lá. Ekið var upp á Dalsheiði í Lóni, gengið að Svarthamravatni þar sem rennt var fyrir fisk. Því miður var aflinn lítill, ekki nema eitt hornsíli. Einnig voru týnd ber og farið í göngutúra. Á heimleiðinni var kíkt á gömlu rafstöðina í Þorgeirsstaðaá. Þetta var síðasta barnauppákoma sumarsins hjá menningarmiðstöðinni en búið er að fara m.a. á lúruveiðar, fuglaskoðunarferðir og skoða eyðibýli svo eitthvað sé nefnt.

Sjá myndir úr ferðinni

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica