Menning
Ljúfir tónar
Ljúfir tónar
Ljúfir tónar (úr myndasafni)

11.08.2003

Kammersveitin Ísafold í Nýheimum!

Dagana 14. - 21. ágúst mun kammersveitin Ísafold ferðast um landið og halda tónleika á sjö stöðum. Fyrstu tónleikarnir eru í Nýheimum á Höfn þann 14. ágúst. Ísafold er skipuð 17 ungum tónlistarmönnum sem stundað hafa framhaldsnám í tónlist og hafa þegar skarað fram úr á sínu sviði.
Á efnisskránni eru nokkur af öndvegisverkum 20. aldar sem sjaldan hafa heyrst hér á landi. Flutt verða 6 verk eftir jafn mörg tónskáld og er efnisskráin svohljóðandi:

Charles Ives The unanswered question
Anton Webern Sechs stucke op. 6
Igor Stravinsky Ragtime
Edgar Varése Octandre
Witold Lutoslawsky Dance Preludes
Haukur Tómasson Stemma

Auk þess að flytja verkin mun hljómsveitin kynna þau og höfunda þeirra. Þannig vilja flytjendurnir færa tónlistina nær áheyrendum og gera hana aðgengilegri fyrir þá sem ekki þekkja.

Kammersveitin Ísafold var stofnuð á haustdögum 2002 og er þessi tónleikaferð því fyrsta verkefni hennar. Hópurinn samanstendur af ungum hljóðfæraleikurum sem eru í framhaldsnámi erlendis eða að ljúka námi hér heima. Hugmyndin á bakvið stofnun hljómsveitinarinnar var að búa til hóp sem gæti starfað sjálfstætt og á eigin forsendum án þess að vera bundinn öðrum í vali á tónlist og umgjörð tónleika.

Tónleikarnir í Nýheimum eru fimmtudaginn 14. ágúst kl 20:00.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica