Kynning vikunnar Dulin veröld, smádýr á Íslandi
Eftir Guðmund Halldórsson, Odd Sigurðsson og Erling Ólafsson
"Dulin veröld, smádýr á Íslandi", höfundar Guðmundur Halldórsson, Oddur Sigurðsson og Erling Ólafsson.
Í þessari bók birtist í fyrsta sinn heildstætt yfirlit yfir helstu smádýr í íslenskri náttúru. Í stuttum og greinargóðum texta er fjallað um hvert dýr og gerð grein fyrir lífsferli þess.
Ljósmyndir í bókinni sýna okkur inn í veröld sem fæstir hafa augum litið og eru einstæður vitnisburður um þá fegurð sem þessi örsmái heimur býr yfir.



