Þjóðsögur íslenskar munnmælasögur
Sýning á verkum íslenskra teiknara sem tókust á hendur það verkefni að myndskreyta þjóðsögur úr munnlegri geymd. Teiknararnir eru þekktir fyrir myndskreytingar í íslenskum barnabókum og tengist sýningin alþjóðlegum degi barnabókarinnar. Sögurnar eru valdar úr hljóðritum í þjóðfræðasafni Árnastofnunar. Sýningin tengist einnig verkefninu Munnleg hefð sem unnin er í samvinnu Árnastofnunar, Háskólaseturs á Hornafirði og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar þar sem upptökur með frásögnum Austur-Skaftfellinga eru afritaðar og skráðar.
Einn þáttur þess verkefnis er miðlun til heimamanna og gesta og má skoða sýninguna sem sýnishorn þess hvernig hægt er að vinna með þann mikla sagnaarf sem finna má í geymslum Árnastofnunar og Héraðsskjalasafnsins á Höfn.


