Austfirskt landslag í íslenskri myndlist í Pakkhúsinu á Höfn
Málverkasýning sem er samstarfsverkefni Stofnunar Gunnars Gunnarssonar og Menningarmiðastöðvar Hornafjarðar stendur nú yfir í Pakkhúsinu á Höfn, en áður var hún til sýnis á Skriðuklaustri. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur valdi verkin á sýninguna og ritaði texta fyrir sýningarskrá, sem er til sölu á staðnum. Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma Pakkhússins alla daga kl. 13-18 og hún mun standa fram í miðjan september.
Á sýningunni eru verk eftir Ásgrím Jónsson, Christian Blache, Eirík Smith, Finn Jónsson, Freymóð Jóhannsson, Georg Guðna, Gunnlaug Scheving, Jón Þorleifsson, Kjarval, Svavar Guðnason, Svein Þórarinsson, Þórarinn B. Þorláksson og Tryggva Ólafsson. Þau eru máluð á á árunum 1881 til 1993
Verkin eru flest fengin að láni hjá Listasafni Íslands en einnig frá Listasafni Reykjavíkur, Þjóðminjasafni Íslands, safni Svavars á Höfn, safni Tryggva á Neskaupsstað og einstaklingum.
Sýningin er styrkt af Menningarráði Austurlands.



