Menning
Komið að Þórisdal
Komið að Þórisdal

31.07.2003

Skoðunarferð að Þórisdal í Lóni

Þann 29. júlí fóru 11 hressir krakkar í eyðibýlaskoðn á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Leiðsögumaður var Sigurður Hannesson safnvörður. Ekið var að Þórisdal í Lóni og merkir staðir á leiðinni skoðaðir eða saga þeirra sögð. Veður var eins og á sönnum sumardegi 20° C og sólskin. Í Þórisdal var oft margbýlt á fyrri öldum en Jökulsá eyddi miklu gróðurlendi, þar á meðal túni svo búsetuskilyrði rýrnuðu mikið en mest urðu þau landsspjöll á fyrri hluta 18. aldar.

Byrjað var á að skoða bæjarrústirnar í Þórisdal, sem eru að mestu uppistandandi. Bærinn hét áður fyrr Þórólfsdalur og virðist nafnbreytingin hafa orðið snemma á 18 öld en ekki vitað hvers vegna. Þórisdalur var stór jörð sem átti land milli Jökulsár og Laxár, frá jökli til sjávar.Heima við bæinn er steindrangur sem heitir Þórir og var nátttröll. Kona hans, Þóra stendur við heimreiðina að sumarbústöðum í Dalsklifum. Mælt er að þau hafi farið að Papós að afla sjófangs en dagað uppi á heimleiðinni þar sem þau standa enn. Ástæða þess að Þóra var þetta langt á eftir bónda sínum stafaði af því að hún var vanfær eins og enn má sjá. Þau áttu heima í fjalli eystra megin Jökulsár.
Síðustu ábúendur í Þórisdal voru hjónin Egill Benediktsson og Guðfinna Sigurmundsdóttir, þau brugðu búi 1968 og fór þá Þórisdalur í eyði.
Þegar búið var að skoða bæjarrústirnar og Sigurður búinn að upplýsa krakkana um allt mögulegt um staðinn var farið í leiki á túninu líkt og krakkarnir sem þarna ólust upp hafa gert. Eftir að hafa leikið sér, gert nestinu góð skil og hlustað á magnaðar sögur Sigurðar um þennan heillandi stað og kanski lifað sig dálítið inn í gamla tímann var haldið á næsta áfangastað sem á sér allt aðra sögu.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica