Leikhópurinn Lopi frumsýnir jólasýningu í dag
Leikhópurinn Lopi er með jólasýningu í Mánagarði núna á aðventunni, leikritið heitir Jólagjafalistinn og er höfundur þess Magnús J. Magnússon, leikritið er einnig í leikstjórn hans. Sýningin fjallar um nokkra krakka sem ferðast um fjöllin í leit að vinum sínum. Fram koma í sýningunni ýmsar skemmtilegar persónur þar á meðal Grýla og Leppalúði , tröll, álfar og dvergar. Sýningin er klukkutíma löng og fyrir alla aldurshópa. Leikarar í sýningunni eru 19 og hefur verið unnið að þessu verkefni undanfarnar vikur. Þetta er 15. starfsár Leikhópsins og er þetta 20. frumsýningin sem hér fer á fjalirnar. Frumsýning er sunnudaginn 16. desember kl. 17.00 og er eins og áður er sagt í Mánagarði.
Nánari upplýsingar um sýningartíma er að finna á Viðburðir



