Jólabókaupplestur í Pakkhúsinu í kvöld – ný dagskrá: Veikar og viðbeinsbrotnar skáldkonur forfallast!
Í kvöld kl. 20 hefst upplestrardagskrá í Pakkhúsinu þar sem lesið verður úr glóðvolgum jólabókum. Dagskráin er haldin á vegum Listvinafélags Hornafjarðar. Gestalistinn hefur tekið smávægilegum breytingum þar sem skáldkonan Kristín Marja Baldursdóttir er lögst í jólaflensu og Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir datt af hjólinu sínu og viðbeinsbrotnaði (rétt áður en hún var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna - fall er fararheill!) En margir góðir gestir eru væntanlegir: Sigmundur Ernir Rúnarson les upp úr ævisögunni Guðni - Af lífi og sál; Sigurður Hannesson les upp úr bók nafna síns Björnssonar frá Kvískerjum, Sótt fram; Halldóra Kristín Thoroddsen les upp úr skáldverki sínu Aukaverkanir; Bjarni Bjarnason les upp úr skáldsögu sinni Bernharður Núll; Hrund Þórisdóttir les upp úr verðlaunabarnabókinni Loforðið og Þorsteinn Geirsson les upp úr Gömlu hugljúfu sveit.
Kynnir verður Soffía Auður Birgisdóttir og mun hún krydda kynningu sína með upplestri úr nýjum ljóðabókum. Tónskólinn býður upp á tónlistaratriði og léttar veitingar veða til sölu. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!


