Menning
Loforðið
Loforðið
Loforðið

05.12.2007

Árlegur jólabókaupplestur í Pakkhúsinu

Hinn árlegi jólabókaupplestur verður í Pakkhúsinu á fimmtudagskvöld kl. 20. Þar les Hrund Þórsdóttir úr bók sinni Loforðið sem er barnabók og var valin besta sagan í samkeppni um íslensku barnabókaverðlaunin 2007. Kristín Marja Baldursdóttir les úr bók sinni Óreiða á striga en það er sjálfstætt framhald af bók hennar Karitas án titils frá árinu 2004. Sigurður Pálsson les úr bók sinni Minnisbók þar sem hann segir frá námsárum sínum í Frakklandi á árunum 1967-1982 og Þorsteinn Geirsson les úr nýrri bók sinni Gamla hugljúfa sveit. Sigurður Hannesson les valda kafla úr nýútkominni bók Sigurðar Björnssonar á Kvískerjum, Sótt fram. Þá ætlar Soffía Auður Birgisdóttir að lesa úr nýútkomnum ljóðabókum nokkurra kvenna.

Nemendur Tónskóla A-Skaft. verða með tónlistaratriði og verða léttar veitingar til sölu. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica