Þjóðhátíðarsjóður úthlutaði Menningarmiðstöð og háskólasetrinu styrk
Nú um helgina var úthlutað styrkjum úr Þjóðhátíðarsjóði og Menningarmiðstöðin á Hornafirði og Háskólasetur á Höfn fegnu styrki til verkefna sem unnið er að. Menningarmiðstöðin fékk tvo styrki. Annar styrkurinn 600.000 kr. er til skráningar á verkum Svavars Guðnasonar. Vinna við skráninguna hófst vorið 2007 og á verkinu að ljúka í febrúar 2008. Þegar hafa um 500 verk verið skráð í gagnagrunn, ljósmynduð og mæld auk þess sem eigendasaga verkanna er skráð. Markmið slíkrar skráningar er að fá heildaryfirlit yfir verk Svavars sem eru fjölmörg og dreifð víða um heim. Verk hans teljast tvímælalaust eitt merkasta framlag íslensks listmálara til sameiginlegs menningararfs þjóðarinnar og heildarskráning verka hans grundvallaratriði og jafnframt frumforsenda fyrir varðveislu, rannsóknum og til skilnings á verkum hans. Skráningin kemur til með að styrkja stöðu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar ? Listasafns sem sérsafns um líf og störf Svavars Guðnasonar.
Þá var Menningarmiðstöð Hornafjarðar úthlutað styrk 300.000 kr. til verkefnisins Munnleg hefð en það verkefni er unnið í samvinnu Menningarmiðstöðvar, Háskólaseturs á Höfn og Árnastofnunar. Áður hafði verkefnið hlotið styrki úr Kvískerjasjóði og Þjóðhátíðarsjóði (2007). Í skjalageymslum Héraðsskjalasafnsins á Höfn og á Árnastofnun er mikill fjöldi hljóðsnælda og segulbanda með upptökum af frásögnum, söngvum og viðtölum við einstaklinga úr Austur-Skaftafellssýslu. Hér er mikill fjársjóður sem ætlunin er að vinna úr fyrir almennan markað og í þágu ferðaþjónustu og skólastarfs í héraði.
Vinna er hafin við að skrifa upp það efni sem til er á Héraðsskjalasafninu og þegar þeirri vinnu lýkur verður hafist handa við það efni sem til er á Árnastofnun. Valdar verða heillegar frásagnir sem tengjast ýmsum stöðum, einstaklingum og atburðum í héraðinu og þær gerðar aðgengilegar fyrir heimamenn og ferðafólk. Fyrsta áfanga verkefnisins, skráningunni, mun ljúka vorið 2008 en rannsóknir og frekari söfnun mun þá taka við auk þess sem vinna hefst við að miðla efninu og gera aðgengilegt. Verkefnið Munnleg hefð er á margan hátt frábrugðið öðrum verkefnum sem snúa að söfnun og varðveislu munnlegra heimilda. Hér er markmiðið að sá mikli fróðleikur sem hér um ræðir verðu ekki eingöngu aðgengilegur fræðimönnum, efnið verður aðgengilegt almenningi og skólafólki á fjölbreyttu formi og með margvíslegum leitarmöguleikum. Heildarmarkmið verkefnisins er að sá mikli fróðleikur sem hér um ræðir verði aðgengilegur fræðimönnum, almenningi og skólafólki á sem fjölbreytilegustu formi og með margvíslegum leitarmöguleikum. Megin tilgangur þessa verkefnis er að styrkja sjálfsmynd heimamanna og tilfinningu þeirra fyrir sögu, umhverfi sínu og menningarlandslagi um leið og það gefur ferðafólki óvenjulega og persónulega leiðsögn um svæðið. Þá fékk Háskólasetur á Höfn styrk úr Þjóðhátíðarsjóði, 300.000 kr. til að halda 120 ára afmælismálþing um Þórberg Þórðarson, 12. mars 2008. Þingið verður haldið á Þórbergssetri og er verkefnið unnið í samvinnu við Þórbergssetur. Setrið tók til starfa sumarið 2006 og hefur markað sér sess í menningarlífi Hornfirðinga og dregur til sín ferðamenn sem leggja leið sína um svæðið. Málþingið verður sem fyrr segir 12. mars og er gert ráð fyrir fjölda fyrirlesara sem munu fjalla um líf og störf skáldsins. Nánar verður sagt frá þessum verkefnum og öðrum sem unnið er að á málþingi um mannlíf og menningu á Hornafirði sem haldið verður í Pakkhúsinu þriðjudaginn 4. desember kl. 20:00



