Menning
Bók Sigurðar Björnssonar, Sótt fram, afhent höfundi
Bók Sigurðar Björnssonar, Sótt fram, afhent höfundi
Bók Sigurðar Björnssonar, Sótt fram, afhent höfundi
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

28.11.2007

Sótt fram, saga Sýslunefndar Austur-Skaftafellssýslu og þættir úr Öræfum.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur gefið út bókina ,,Sótt fram´´ þar sem birtir eru fjórir sjálfstæðir þættir eftir Sigurð Björnsson á Kvískerjum . Í fyrsta þætti bókarinnar er saga sýslunefndar Austur-Skaftafellssýslu sem hafði afskipti af mörgum framfaramálum í sýslunni.Saga hennar hófst árið 1873 áður en barnakennsla byrjaði, áður en vegir voru lagðir um sýsluna og áður en læknir kom í héraðið og Höfn varð til. Annar þáttur bókarinnar nefnist Öræfin-sagan og sagnir sem hefst við landnám Ingólfs, síðan er stiklað á stóru í sögu sveitarinnar fram á okkar daga og fylgst með lífi fólks í gleði og raun, framförum og hamförum í Öræfasveit. Þriðji þáttur bókarinnar er Ættarsaga þar sem Sigurður bregður upp skýrum myndum af fólkinu og setur sig í spor þess og mætti þá stundum ætla að hann hefði verið uppi á 18.eða 19.öld svo vel gerir hann sögupersónunum skil.

Lokakafli bókarinnar nefnist Skeiðará. Þar er sagt frá eyðingu nytjalanda af völdum Skeiðarár og hefur Sigurður dregið þar saman ýmsan fróðleik um þetta mikla vatnsfall og áhrif hennar á lífið í Öræfum.

Um útgáfu bókarinnar sáu Sigurður Hannesson, Björn G. Arnarson starfsmenn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar ásamt Gunnþóru Gunnarsdóttir fréttamanni. Fjöldi mynda er í bókinni.

Í formála bókarinnar segir Sigurður Hannesson að um hálfur annar áratugur sé síðan ritnefnd héraðssöguritsins Skaftfellings barst í hendur handrit Sigurðar Björnssonar að sögu sýslunefndar Austur- Skaftafellssýslu undir heitinu Sótt fram og bæði þá og oft síðan hafi komið til umræðu að gefa út sérstaka bók fyrir þessa grein og fleira fróðlegt sem Sigurður ætti í fórum sínum.

Það var því þegar líða fór að níræðisafmæli Sigurðar þ.24.apríl sl. að starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar hófst handa við útgáfu bókarinnar og ákveðið var að bókin skildi heita eftir titil ritsins, Sótt fram, þar sem það væri lýsandi fyrir efni bókarinnar í heild.

Í tilefni af útkomu bókarinnar heimsóttu þeir Sigurður og Björn höfundinn þar sem hann dvelur á hjúkrunardeild HSSA á Höfn og færðu honum eintak af bókinni.

Hægt er að kaupa bókina á Bókasafninu í Nýheimum

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica