Menning
Mugison2
Mugison2
Mugison verður í Pakkhúsinu þriðjudagskvöld (Mynd Ari Magg)

24.11.2007

Mugison, Rottweiler meðal tónlistaviðburða næstu viku

Nú nálgast jólin og er þó nokkuð síðan að verslanir og veitingastaðir hér á Höfn byrjuðu að setja upp jólaljós. Eins og fólk hefur tekið eftir á Skjávarpi þá er úrval af hverskonar jólahlaðborðum, julefoukost, litlujólum með allskonar uppákomum í kringum þá viðburði. Á þriðjudag verða þematónleikar hjá Tónskólanum og að þessu sinni verða það kvikmyndatónlist sem verður fyrir valinu. Um kvöldið verður síðan hinn frægi Mugison með tónleika í Pakkhúsinu og hefjast þeir kl.21. Miða á þessa tónleika er hægt að nálgast á Bókasafninu í Nýheimum. Tónlistarviðburðir í næstu viku eru ekki upptaldir því á föstudagskvöld kl.22 XXX Rottweiler hundarnir í Sindrabæ á vegum FAS.

Það verður mikið um að vera í desember og byrjar hann á Hafnarrölti laugardaginn 1.desember

Sjá viðburði

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica