Menning
Mynd eftir Svavar Guðnason
Mynd eftir Svavar Guðnason

19.11.2007

Heildarskráning á myndlist Svavars Guðnasonar

Í tilefni af því að árið 2009 verða 100 ár liðin frá fæðingu Svavars Guðnasonar og fyrirhugaðri útgáfu veglegrar bókar um list hans, er verið að vinna að heildarskrá yfir verk listamannsins. Menningarmiðstöð Hornafjarðar vinnur að skráningu verkanna og er farið með upplýsingar um eigendur sem trúnaðarmál. Eigendur myndverka eftir Svavar Guðnason eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Þorbjörgu Gunnarsdóttur í síma 697 9649 eða með tölvupósti á netfangið: thorbjorgbr@gmail.com. Þess má geta að Menningarmiðstöð hefur hlotið styrk frá Þjóðhátíðarsjóði til að vinna þetta verkefni. Með þessari skráningu verður þekkingu um líf og störf Svavars safnað á einn stað og hlutverk Menningarmiðstöðvar - Listasafns sem miðstöðvar þar sem safnað er heimildum um hornfirska listamenn styrkt.

Þá er einnig hægt að fá upplýsingar um skráninguna hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar í síma 470 8052 eða með tölvupósti á netfangið: bjorgerl@hornafjordur.is.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica