Menning
Útileikskóli teiknað í snjóinn og norrænbókavika í Nýheimum
Útileikskóli teiknað í snjóinn og norrænbókavika í Nýheimum
Útileikskóli teiknað í snjóinn og norrænbókavika í Nýheimum

14.11.2007

Líf og fjör á Bókasafninu

Á Bókasafninu hefur verið mikið líf og fjör síðustu daga. Krakkar frá Lönguhólum, Krakkakoti og Nesjaskóla hafa komið í heimsókn og hlustað á upplestur úr Línu Langskokk bókum Astrid Lindgren. Síðustu daga hefur borið á ferðum furðulegra karla sem starfsmenn Bókasafnsins hafa grunaða um að ásælast þann fjársjóð sem bækurnar okkar eru og hafa krakkarnir hjálpað til við að fylgjast með þeim og hindra þá í ferkari axarsköftum. Svo vel vildi til að Lína Langsokkur átti leið um Bókasafnið og tókst henni að halda þjófunum þar til bókalöggan mæti og handsamaði þjófana. Að öllu þessu loknu settust krakkarnir ásamt Línu niður og fengu sér Línu-klatta en Lína segir að það séu bestu lummur í heimi. Lína á aftur leið um Bókasafnið á fimmtudag klukkan 14 og eru allar Rúllugardínur, Línur og Ronjur velkomnar á Bókasafnið ásamt öllum þeim sem vilja koma í heimsókn á Bókasafnið.

Viltu svo gera eitthvað úr upplestrinum annað kvöld. Þá lesa Soffía Auður Birgisdóttir og Snæfríður Svavarsdóttir upp úr bókum Sigrid Undset og Karin Blixen. Upplesturinn hefst á fimmtudagskvöld klukkan 20 og verður heitt á könnunni. Allir velkomnir ? ungir sem aldnir

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica