Jöklasýning - opið hús
Laugardaginn 26. júlí verður opið hús á Jöklasýningunni til að kynna bæjarbúum og öðrum gestum nýungar á sýningunni. Nýungarnar eru fyrst og fremst 2 líkön. Annars vegar líkan af landinu öllu með hnappaborði, sem upplýsir staðsetningu hvers jökuls ásamt grunnupplýsingum um þá og hins vegar stórt líkan af Vatnajökli og umhverfi hans. Áætlað er síðan að vinna áfram með það líkan og gera það gagnvikt þannig að hægt sé að lyfta jökulhettunni upp á áhugaverðum stöðum.
Bæjarbúar eru sérstaklega hvattir til að nýta sér tækifærið því aðgangur er ókeypis þennan dag.



