Menning
Ljúfir tónar
Ljúfir tónar
Ljúfir tónar (úr myndasafni)

10.10.2007

Málþing um norrænt menningarsamstarf

Menningarráð Austurlands sem Menningarmiðstöð Hornafjaðar er aðili að heldur málþing um norrænt menningarsamstarf 16. október á Hótel Héraði Egilsstöðum. Tilefnið er meðal annars það að út er að koma ritið Á jaðrinum ? på ytterkanten, sem er samstarf Menningaaráðana á Austurlandi og í Vesterålen í Noregi. En á milli þessara svæða hefur verið formlegt menningarsamstarf í nokkur ár. Gestur málþingsins er nýr sendiherra Noregs á Íslandi Margit Tveiten. Fyrirlesarar eru Max Dager forstöðumaður Norræna hússins á Íslandi, María Jóna Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar og Unnur Stefánsdóttir formaður vinabæjanefndar Norræna félagsins á Íslandi.

Vaxandi gróska er í norrænu samstarfi hér á Austurlandi um þessar mundir, verið að endurvekja Norrænu félögin á Austurlandi, unga fólkið okkar fer aldrei meir en nú í nám til Norðurlandanna og mikið er að gera í menningarsamstarfinu.
Er þörf á því að efla þetta enn frekar og þá hvernig?

 

Dagskrá:

 

13.00   Setning þingsins

Óðinn Gunnar Óðinsson formaður Menningarráðs Austurlands

 

13.10   Ávarp

Margit Tveiten sendiherra Noregs á Íslandi

 

13.20   Kynning á ritinu Á jaðrinum – på ytterkanten

sem Menningarráð Vesterålen og Menningarráð Austurlands gefa út

            Margit Tveiten sendiherra Noregs á Íslandi

 

13.35   Tónlist

           

13.45   Norden i sentrum – Öst Island eller Manhattan     

Max Dager forstöðumaður Norræna hússins í Reykjavík

 

14.10   Hvað er Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri?

            María Jóna Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar

 

 14.30  Hlutverk Norrænu félaganna í norrænu samstarfi

            Unnur Stefánsdóttir formaður vinabæjanefndar Norrænafélagsins á Íslandi

 

 14.45  Kaffi

 

 15.30  Hvers vegna norrænt samstarf?

            Pallborðsumræður

            Stjórnandi Arndís Þorvaldsdóttir

 

 16.10  Ráðstefnuslit

            Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi á Austurlandi

 


 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica