Kynning vikunnar Eitruð epli
Í nýlegri bók sinni,"Eitruð epli",lýsir Gerður Kristný stormasömu sambýli fólks við sína nánustu, grátbroslegum samskiptum kynjanna, margræðu sambandi kvenna sem hafa bundist systraböndum saumaklúbbanna og hún fjallar á nærfærinn hátt um samskipti barna.
Ísmeygilegur stíll sagnanna gerir þó að verkum að ekki er allt sem sýnist.



