Menning
Menning á Humarhátíð
Menning á Humarhátíð
Dáðst að mynd Hlyns Pálmasonar.

29.06.2007

Mikil menning á Humarhátíð

Að vanda verður mikið um menningarviðburði á Humarhátíð og má þar nefna sumarsýningu á verkum Svavars Guðnasonar sem opnar í dag. Á sýningunni verður úrval verka í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem ekkja Svavars, Ásta Eiríksdóttir hefur fært sveitarfélaginu síðast liðin ár. Sýningin verður á Hafnarbraut 36, neðri hæð (gamla bókasafninu) og verður opin daglega frá kl. 14.00-18.00 til 7. ágúst. Á Graðalofti (á loftinu í Miklagarði) heldur Hlynur Pálmason (sonur Pálma Guðmundssonar og Elínar Magnúsdóttur) ljósmynda- og málverkasýningu. Þetta er fyrsta einkasýning Hlyns þar sem hann sýnir ljósmyndir, olíuverk og önnur verk sem hann hefur unnið að síðustu misseri. Sýningin opnaði í gær og stendur til laugardags 30. júní.


Í Sindrabæ sýnir Leikhópurinn frú Norma barnaleikritið ?Bara í draumi?. Verkið fjallar um ungan dreng sem verður eina nóttina vitni að því að leikföngin hans lifna við. Er hann að dreyma? Geta bangsar bara talað í draumi? Eru höfuðáttirnar fjórar eða átta? Veðmál unga drengsins við leikfangahermanninn sinn leiðir þá í ævintýraferð sem drenginn hefði ekki getað dreymt um. Eða hvað? Sýningin verður laugardaginn 30. júní kl. 11.00 og kl. 15.00. Aðgangur ókeypis

Skoðunarferð í Mikley verður laugardaginn 30. júní kl. 10.00. Farið verður frá Pakkhúsinu. Leiðsögumaður Sigurður Hannesson.

Opnuð verður ný sýning í Verbúðinni Miklagarði kl. 17.00 í dag. Frásagnir fólks sem bjó í verbúðinni á sínum tíma, gamlar myndir og ýmiss annar fróðleikur. Sýningin verður opin alla daga í sumar frá kl. 9.00 til 18.00.

Gamlabúð verður formlega opnuð sunnudaginn 1. júlí kl. 14.00 eftir miklar endurbætur. Farið verður í gamla leiki, harmóníkuleikarar verða á staðnum, leiktæki og gönguferðir.

Jöklasýningin verður að venju opin alla helgina frá kl. 9.00 til 21.00. Minnum á að íbúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar þurfa ekki að greiða aðgang.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica