Menning
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson

29.06.2007

Opið hús í Þórbergssetri

Sunnudaginn 1. júlí á safnadaginn er liðið nákvæmlega eitt ár frá opnun Þórbergsseturs á Hala. Gestkvæmt hefur verið þar síðustu daga og á þessu eina ári sem liðið er síðan setrið var opnað hafa um 6000 gestir skoðað sýningarnar þar. Mun fleiri hafa þó komið við í Þórbergssetri og kynnt sér verkefnið eða notið þar veitinga og spjallað um málefni líðandi stundar.Fjölskyldufólk hefur farið í ratleikina sem liggja um grundir og móa enda veður verið með eindæmum gott síðustu daga. Í tilefni af árs afmæli Þórbergsseturs verður opið hús þar sunnudaginn 1. júlí. Upplestur verður úr verkum Þórbergs í fjósbaðstofunni á Hala kl 14:00, í Bergshúsi kl 15:00 og á Hringbrautinni kl.16:00.

Aðgangur að safninu verður ókeypis þennan dag og vonast er eftir að einhverjir líti við og skoði sig um í Suðursveit.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica