Byrjuðu á að skoða gaumgæfilega vel falið eyðibýli
Það sem af er sumri erum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Sindra búin að fara í þrjár skemmtilegar ferðir, fuglaskoðun, jurtaskoðun og eyðibýlaskoðun. Í gær þriðjudag fórum við með 22 börn í umsjón Hólmfríðar Þrúðmarsdóttur, Sigurðar Hannessonar, Þóreyjar Gísladóttur og Vífils Karlssonar. Farið var á Sindrarútunum og haldið inn í Þórisdal í Lóni. Þar byrjuðum við á að skoða gaumgæfilega vel falið eyðibýli, síðan var farið í leiki og borðað nesti. Kíktum við einnig á vörðu sem við hlóðum í fyrra og bættum aðeins í hana. Á leiðinni að vörðunni rákumst við á tvo litla skógarþrastarunga sem að sumir höfðu áhyggur af að væru munaðarlausir og vildu helst taka að sér, en móðirin var ekki skammt undan. Á heimleiðinni var komið við í fjörunni fyrir neðan Þorgeirsstaði og skoðuðum við okkur um og fleyttum kerlingar í sjónum.
Þetta var einstaklega skemmtileg og vel heppnuð ferð eins og sjá má á myndunum sem fylgja.
Í næstu viku er síðan komið að því að við bregðum okkur í störf fornleifafræðinga og förum í fornleifarannsóknir.
Hlökkum til að sjá ykkur á þriðjudaginn í næstu viku!
Sjá einnig myndasafn



