Farið verður í 10 skemmtilegar ferðir með krakkana í sumar
Sumarstarf barna – Sumarið 2007
Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar er hafið og er víst að það verður nóg um að vera hjá krökkunum í sumar. Farið verður í 10 skemmtilegar ferðir en eins og undanfarin ár þá hafa þær verið hver annari skemmtilegri. Þeir krakkar sem ætla í ferðir þurfa að skrá sig annað hvort á Bókasafninu eða í síma 470-8050. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa með sér nesti. Verðið er óbreytt, eða 500 krónur á barn. Ferðirnar eru á þriðjudögum í sumar og hefjast kl.13:00. Þeir sem ætla í ferðirnar verða að fylgjast með hvaðan þær byrja. Næsta ferð sem er jurtaskoðunarferð verður farin þriðjudaginn 19. júní kl.13:00 og hefst hún við Nýheima.
Dagskrá:
12. júní: Fuglaskoðun
19. júní: Jurtaskoðun
26. júní: Eyðibýlaskoðun
3. júlí: Fornleifarannsóknir
10. júlí: Ævintýraferð í Hoffell
17. júlí: Lúruveiði (ATH! Dagssetning gæti breyst)
24. júlí: Halaferð
31. júlí: Fjöruferð
4. ágúst: Hafnarferð
7. ágúst: Óvissuferðin!!


