Landsliðið í tónlist á Djúpavogi
Dagana 31. maí ? 3. júní verður haldin Hammond hátíð á Djúpavogi. Á hátíðinni munu fjölmargir tónlistarmenn koma fram en hátíðin er haldin til að heiðra og kynna fyrir tónlistaraðdáendum Hammondorgelið sem úrsmiðurinn Hammond töfraði úr huga sínum til þess að geta gert fátækum söfnuðum kleift að syngja við orgelundirleik.
Hugmyndina að hátíðinni og langstærstan heiður af framkvæmd hátíðarinnar á Svavar Sigurðsson.
Fimmtudaginn 31.maí verður Djúpavogsdagur hátíðarinnar þar sem hátíðin verður sett og tónlistarmenn frá Djúpavogi munu spila. Má þar sérstaklega nefna hljómsveitina Arachnophobia sem eru drengir á aldrinum 13 ? 15 ára en spila m.a. tónlist eftir Santana, Pink Floyd og fleiri.
Föstudaginn 1.júní verða Austfirðingar í aðalhlutverki en þá munu blúshljómsveitirnar Blúsbrot Garðars Harðar og félagar og Mæðusveitin Sigurbjörn leika á Hótel Framtíð.
Laugardaginn 2. júní sýna ungir hljómborðsleikarar sýna hæfileika sína á Hammond auk þess sem Agnar Már Magnússon og Hrund Ósk Árnadóttur munu koma fram. Um kvöldið verða svo eðaltónleikar á Hótel Framtíð þar sem landsliðið leikur listir sínar. Í landsliðshópinn komust að þessu sinni: Einar Rúnarsson, Ásgeir Óskarsson, Halldór Bragason, Jakob F. Magnússon, Andrea Gylfadóttir, Eðvald Lárusson, Jón Ólafsson. Eftir þessa tónlistarveislu er ætlunin að dansa diskó fram á rauða nótt.
Sunnudaginn 3. júní verður svo Hammond í Djúpavogskirkju en þar verður hljóðfærið notað í Sjómannadagsmessu og eftir messu verða leikin sjómannalög á Hammond.
Á Djúpavogi er ýmis afþreying í boði og má þar nefna, Hótel, kaffihús, söfn, golfvöll, sundlaug og fleira en ætlunin er að bjóða upp á hinar ýmsu uppákomur fyrir yngri kynslóðina meðan á hátíðinni stendur. Nánari upplýsingar má finna á www.djupivogur.is/hammond.



