Guðrún Ingólfsdóttir opnar málverkasýningu
Þann 19. maí opnaði Guðrún Ingólfsdóttir málverkasýningu á Kaffihorninu. Þar sýnir hún 43 akrýl verk. Myndirnar eru allar málaðar á þessu ári og er þema sýningarinnar Vatnajökull og fjöllin í Lóni. AÐ sögn Guðrúnar þá er sýningin hjá henni liður í að safna í möppu fyrir frekara listnám en hún er að hefja nám í Myndlistaskólanum Í Reykjavík næsta vetur og segist hún stefna á meira nám í listgreinum á næstu árum.
Sýningin sem er sölusýning verður opin á opnunartíma Kaffihornsins og mun standa yfir í sumar.
.jpg)


