Samkomulag um afhendingu muna til Menningarmiðstöðvar og Jöklaseturs.
Í gær fór fram undirritun á samkomulagi annars vegar milli Sverris Scheving Thorsteinssonar og Lovísu H. Gunnarsdóttur og hins vegar Sveitarfélagsins Hornafjarðar um afhendingu muna úr eigu þeirra Sverris og Lovísu. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Í samkomulaginu felst að starfsmenn Menningarmiðstöðvar muni skrá og flokka þá muni sem Sverrir og Lovísa hyggjast gefa Menningarmiðstöðinni og Jöklasetri. Þeir munir sem um er að ræða eru m.a. landabréfakort, málverk, bækur um jöklaferðir og tengd málefni ásamt ýmsu öðru sem snertir sögu svæðisins og öðru sem hefur víðari skírskotun.
Í lok árs, þegar skráningu er lokið, fer fram formleg undirritun gjafabréfa. Sverrir og Lovísa eiga mikinn fjölda muna sem tengjast sögu héraðsins, einstaklingum og náttúru auk annarra muna sem hafa víðari skírskotun.



