Samkór Hornafjarðar með tónleika í Hafnarkirkju
Samkór Hornafjarðar heldur tónleika í Hafnarkirkju þriðjud. 15. maí. Efnisskráin er mjög fjölbreytt, þar er suður-amerísk sveifla, gospel, franskar drykkjuvísur, ástarsöngur frá Spáni og Messe brève no. 7 eftir franska tónskáldið Gounod. Auk þess flytur kórinn lagasyrpu úr Fiðlaranum á þakinu við undirleik hljómsveitar sem er skipuð þeim Jóhanni Moràvek, Guðlaugu Hestnes, Jónínu Einarsdóttur, Katrínu Birnu Þráinsdóttur og Zophoníasi Torfasyni. Einsöngvarar eru Nanna Halldóra Imsland, Sólveig Sigurðardóttir og Sigurður Kr. Sigurðsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er aðgangseyrir kr. 1000.



