Bardukha snýr aftur til Hornafjarðar
Það er hver tónlistarveislan á fætur annarri á Höfn og að þessu sinni er það hljómsveitin Bardukha sem heldur tónleika í Pakkhúsinu annað kvöld (miðvikudagskvöldið 2.maí) Þetta mun vera önnur heimsókn Bardukha til Hornafjarðar en þeir félagar léku með Kvennakór Hornafjarðar fyrir rúmu ári við góðan orðstír. Balzamersveitin Bardukha var stofnuð 2003 og eru meðlimir Steingrímur Guðmundsson sem leikur á slagverk, Ástvaldur Traustason á harmoniku, Hjörleifur Valsson á fiðlu og Birgir Bragason á bassa. Þeir félagar leika eigin hræring af þjóðlagatónlist þar sem blandað er saman balknesku, slavnesku og arabísku tónkryddi. Frá stofnun hefur Bardukha verið iðin við að leika vítt og breitt um landið en einnig hafa þeir margoft komið fram í sjónvarpi og útvarpi.
Þó að tónlist Bardukha virðist vera niðurnjörvuð og hefðbundin þjóðlagatónlist með taktríkum sígaunablæ er ekki rétt að láta blekkjast. Þessir piltar láta gjarnan gamminn geysa, taka sér óspart skáldaleyfi og sleppa sér lausum í frjálsum og persónulegum einleiks spunaköflum sem færir tónlistina í nýjar og óræðar víddir. Flutningur Bardukha fær þar af leiðandi sinn eigin svip og einkenni og þess vegna hafa þeir félagar kosið að nefna tónlist sína Balzamer-tónlist, til að forðast samlíkingar.
Kvennakórinn mun sjá um sölu á veitingum. Tónleikarnir hefjast kl.21 og er aðgangseyrir kr. 1000
Sjá heimasíðu Bardukha



