Menning
Gamlabúð
Gamlabúð
Gamlabúð
Mynd 1 af 2
1 2

24.04.2007

Stefnumótun í menningar– og safnamálum 2007-2017

Núverandi stefnumótun í menningar- og safnamálum Hornafjarðar 2000-2010 var samþykkt í menningarmálanefnd 29. október 2000 og staðfest í bæjarstjórn Hornafjarðar 1. mars 2001. Margt hefur breyst á þeim tíma sem liðinn er, starfsemin vaxið og þróast, nýtt húsnæði hefur verið tekið í notkun og ný verkefni litið dagsins ljós. Menningarmálanefnd, aðal? og varamenn og starfsmenn Menningarmiðstöðvar hafa unnið þessa endurskoðun á stefnumótun. Á fyrsta fundi hópsins var lögð fram tillaga að endurskoðaðri stefnumótun. Alls voru þrír fundir haldnir þar sem viðbætur og breytingar frá fyrri stefnumótun voru ræddar, og athugasemdir gerðar.

Í stefnumótuninni voru margvíslegar tillögur og stefnuvísar settir fram. Í endurskoðun stefnumótunar gefst tækifæri til þess að yfirfara og kanna hvernig til hefur tekist. Nauðsynlegt er að fara yfir þau verkefni sem unnið hefur verið að, hvað hefur náð fram að ganga, og að hvaða þáttum þarf að hlúa betur eða hætta við. Ennfremur að skilgreina að hvaða verkefnum menningarstofnanir sveitarfélagsins eiga að vinna og um leið marka það starf sem þar fer fram á næstu árum.

Um leið og þessi endurskoðun er unnin þarf að velta fyrir sér umhverfi menningarstarfs á svæðinu, hefur umhverfið breyst, eru ný tækifæri að opnast ? eða eru nýjar ógnanir við starfsemina, hvar liggur styrkur starfseminnar og hverjir eru veikleikar hennar. SVÓT greining er nauðsynlegt tæki til þess að gera sér grein fyrir því starfsumhverfi sem við hrærumst í, um leið og við drögum fram þær leiðir sem færar eru til þess að ná þeim markmiðum sem sett eru fram í stefnumótuninni.

Endurskoðun á stefnumótun kallar á umræður um eftirfylgni. Það þarf m.a. að ræða hvernig verkefnin framundan eru skipulögð, tímasetningar verkefna og eftirlit með hvort markmiðum er náð og hvaða árangri Menningarmiðstöð er að ná í sínu starfi. Mat á starfsemi Menningarmiðstöðvar og deilda hennar er leiðbeinandi um gildi þeirrar þjónustu sem veitt er, veita þarf almenningi og stjórnmálamönnum innsýn í reksturinn útfrá öðrum sjónarhól en er við reikningsskil og bæta þannig yfirsýn þeirra sem standa í forsvari fyrir sveitarfélagið og gera þá betur í stakk búna til að sinna eftirlitshlutverki sínu.

Markmið stefnumótunar í menningarmálum er að efla starfsemi og starfshætti sveitarfélagsins í þessum málaflokki, efla starfsemi og starfshætti

Menningarmiðstöðvar, móta starfið til næstu ára, skerpa á áherslum í starfseminni og mæla árangur starfsins. Tilgangur stefnumótunar er að bæta stjórnun Menningarmiðstöðvar og deilda hennar og skapa jákvæða og trausta ímynd í huga almennings.

Uppsetning frá fyrri stefnumótun er nokkuð breytt og eru markmið og leiðir fyrri stefnumótunar (kallaðar tillögur) aðskilin frá almennri lýsingu á starfsemi

Menningarmiðstöðvar og deilda hennar. Stefnumótun er unnin fyrir hverja deild enda áhersluþættir ólíkir þótt oft séu þeir sameiginlegir, eins er um framtíðarsýn en kjörorð eru þau sömu. Þessari skiptingu eftir deildum er ætlað að skerpa á

áherslum í innra starfi Menningarmiðstöðvar og draga fram þá sérstöðu sem einkennir ólíka þætti starfseminnar. Í endurskoðaðri stefnumótun er gert ráð fyrir eftirfylgni og því hvernig hægt sé að fylgjast með hvort þeim markmiðum sem fram koma í stefnumótuninni sé náð og hvaða árangri Menningarmiðstöðin nær í sínum rekstri.


Björg Erlingsdóttir

Forstöðumaður
Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica