Menning
Bardukha
Bardukha
Bardukha

16.04.2007

Bardukha með tónleika í Pakkhúsinu 2. maí

Hljómsveitin Bardukha heldur tónleika í Pakkhúsinu miðvikudaginn 2. maí á ferð sinni um Ísland. Balzamersveitin Bardukha var stofnuð 2003 og eru meðlimir Steingrímur Guðmundsson sem leikur á slagverk, Ástvaldur Traustason á harmoniku, Hjörleifur Valsson á fiðlu og Birgir Bragason á bassa. Þeir félagar leika eigin hræring af þjóðlagatónlist þar sem blandað er saman balknesku, slavnesku og arabísku tónkryddi. Frá stofnun hefur Bardukha verið iðin við að leika vítt og breitt um landið en einnig hafa þeir margoft komið fram í sjónvarpi og útvarpi. Þó að tónlist Bardukha virðist vera niðurnjörvuð og hefðbundin þjóðlagatónlist með taktríkum sígaunablæ er ekki rétt að láta blekkjast. Þessir piltar láta gjarnan gamminn geysa, taka sér óspart skáldaleyfi og sleppa sér lausum í frjálsum og persónulegum einleiks spunaköflum sem færir tónlistina í nýjar og óræðar víddir.

Flutningur Bardukha fær þar af leiðandi sinn eigin svip og einkenni og þessvegna hafa þeir félagar kosið að nefna tónlist sína Balzamer-tónlist, til að forðast samlíkingar. Fyrsti geisladiskur hljómsveitarinnar kom út í desember 2006.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica