Fundur handverks- og listiðnaðarfólks í Nýheimum
Handverks- og listiðnaðarfólk í Austur-Skaftafellssýslu heldur fund í Nýheimum á sunnudag. Á fundinn kemur Sunneva Hafsteinsdóttir frá HANDVERKI OG HÖNNUN. Hún mun ræða skilgreiningar í handverki og listiðnaði og reyna að skilgreina "Hvað er minjagripur" og sýna fjölda mynda. Sunneva veltir upp spurningum eins og Fá erlendir og innlendir ferðamenn þá minjagripi sem þeir eru að leita að? Eru einhverjar leiðir til að koma betur til móts við ferðamenn bæði erlenda og íslenska? Hvernig vilja Íslendingar að erlendir ferðamenn muni eftir landi og þjóð. Sunneva býður einnig upp á viðtalstíma og getur veitt ráð varðandi vöruþróun, umbúðahönnun, framsetningu og fl.
Þátttakendur eru hvattir til að koma með sýnishorn af vörum sem eru til sölu á þeirra vegum. Fundurinn fer fram í Nýheimum, stofu 202 í FAS, sunnudaginn 15. apríl og hefst kl. 17.00. Fundinum lýkur kl 22.00. Boðið verður upp á léttan kvöldverð.



