Menning
KASK úr gömlu myndasafni
KASK úr gömlu myndasafni
KASK úr gömlu myndasafni

31.03.2007

Kaupfélagsskjöl á skjalasafn

Í gær föstudaginn 30. mars, afhenti Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri Héraðsskjalasafninu á Höfn mikið magn skjala úr eigu Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Flest eru þessi skjöl gömul, sum frá upphafsárum Kaupfélagsins og flest afar verðmæt, m.a. er bók sem inniheldur+ handskrifaða skrá yfir alla skráða félaga í Kaupfélaginu frá upphafi til ársins 1999. Þá afhenti Pálmi einnig mikið af ljósmyndum úr eigu kaupfélagsins.

Nokkrar af ljósmyndunum hafa verið settar í sýningarkassa í bókasafninu þar sem almenningur getur skoðað þær.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica