Kynning vikunnar - ÉG VEIT ÞÚ KEMUR
Ég veit þú kemur. Þjóðhátíð í Eyjum 2002" í frásögn Gerðar Kristnýjar.
Vinsælasta útihátíð heims! Hún hefur auðgað líf hundruð þúsunda manna í rúma öld og hér kemur bókin um þessa merku hátíð. Um siði heimamanna, ósiði aðkomumanna, fljúgandi tjöld, foruga unglinga, brekkusöng í bálviðri og síðast en ekki síst - goðsögnina Árna Johnsen.
Enginn sem hefur farið á útihátíð getur látið þessa bók framhjá sér fara. Gerður Kristný var einn hundblautra þjóðhátíðargesta árið 2002 og lýsir lífinu á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.



