Rúna Benný heldur einkasýningu í Luxembourg
Þann 28.mars mun Rúna Benný (Guðrún Benedikta Elíasdóttir) opna sína aðra einkasýningu í Luxembourg, en hún hélt sýningu hér á Höfn síðast á Humarhátíð 2003. Hún hefur einnig sýnt víða á Íslandi, í Frakklandi og Þýskalandi. Rúna Benný sem er "Hornfirðingur" heldur sýninguna á Hotel Parc Beaux-Arts eða Fagurlista hótelinu sem er í miðjum elsta hluta borgarinnar og leggur upp úr því að vera með öðru vísi hótel. Þar eru eingöngu svítur og er hver svíta tileinkuð verkum eins listamanns. En sýningin verður á jarðhæð í móttöku og veitingasal en einnig í einni svítu og tveimur "vínkjöllurum" sem fundust við uppgröft. Sýningin ber heitið Náttúruauðlindir þar sem viðfangsefnið er auðlindir manns og náttúru. Rúna Benný segist hafa málað steina um árabil og leikið sér að tvöfaldri merkingu í myndum og titlum. Hún segist fjalla um náttúruna, manninn í náttúrunni og náttúrunni í manninum, þar með talið náttúruna í sér.
Málverkin eru undir sterkum áhrifum frá íslenskri náttúru og menningu. Miklar andstæður eldur, ís, svartir sandar við hvíta jökulsporða. Hálendi Íslands með sínum sterku litum þar sem ekkert sem hún setur á strigann getur verið litríkara en fyrirmyndin. Rúna Benný segist vinna málverkin út frá ímyndum og minningarbrotum með vísun í mannlega náttúru og samskipti milli manna. Einnig fæst hún við vatnið, kyrrt, rennandi eða jafnvel frosið.
Flest verkin eru unnin með akríl á striga en síðustu tvö árin hefur Rúna Benný unnið samhliða með "patin au vin" sem er uppskrift að bindiefni, sem hún fann í franskri bók fyrir nokkrum árum. Blanda úr hvítvíni, mjólk, eggjum og sykri og litadufti. Rúna Benný segir að henni finnst viðeigandi að mála með Móselvíni eftir að hún flutti til Lúxemborgar fyrir tæpu ári síðan.
Sýningin stendur til 13.maí n.k.
Næstu verkefni hennar eru International Art Exhibition Nord Art 2007, Rendersburg, Þýskalandi sem verður 9. júní til 30. sept. 2007. Samsýning ásamt Katrínu Friðriks, sjá www.katabox.com í Fortis Banque Luxembourg júlí 2007
Um listamanninn:
GUÐRÚN BENEDIKTA ELÍASDÓTTIR
Fædd á Höfn í Hornafirði 9.júní 1963
Heimilisfang: 8 rue Raoul Follereau, 1529 Luxembourg - Cents, Luxembourg
sími: +352 26 43 02 54 - netfang: r.benedikta@gmail.com
Menntun:
- Myndlista og handíðaskóli Íslands 1983 - 1987
- Námskeið fyrir myndlistarkennara í Noregi NK 1994
- Seminar on Art HÍ og MHÍ. 1997, Creativity course Frakklandi 2003 ofl. Námskeið á vegum FÍMK og kennaraháskólans.
- Menntaskólinn við Sund 1979-1983
Starfsferill:
Starfað sem myndlistarkennari 1987 ? 2006 Frá október 1995 vann ég á vinnustofu minni í Skruggusteini og rak þar einnig listmunagallerí og sýningarsal í félagi við fleiri listamenn til sept 1998. Árið 1999 til 2000 bjó ég og starfaði við myndlist í Frakklandi.
Auk þessa hef ég unnið við hönnun og uppsetningu á sýningum og kynningarbásum fyrir ýmsa aðila s.s. Ferðamálaráð, Upplýsingamiðstöð ferðamála, Reykjavíkurborg, Samgönguráðuneytið, Iðntæknistofnun ofl. Sá um útstillingar í Landsbankanum Laugarvegi 77 frá 1988 ? 1997. Hef teiknað veggspjöld, bókarkápur og myndskreytt sögur í tímaritum og skýrslu fyrir Iðntæknistofnun. Vann á gestavinnustofu í Vallauris í Suður-Frakklandi,í desember 2005 og janúar 2006. Hef starfað sem myndlistarmaður í Lúxembourg síðan um mitt árið 2006.
Einkasýningar:
1997 Lífið í götunni , Listhús 39, Hafnarfjörður, Ísland
1997 Náttúrulega, á 100 ára afmælishátíð á Höfn í Hornafirði, Ísland
2000 How to get there, Sophia Antipolis, Frakkland
2003 Tilurð, Nýheimar, Höfn í Hornafirði, Ísland
2005 Off the beaten track (Utan vega), Berlín, Þýskaland
2005 Undirliggjandi, Iðuhúsinu, Reykjavík, Ísland
2005 Bergnumin, Thorvaldsen Bar, Reykjavík, Ísland
2006 Nýjar slóðir, Vallauris, Frakkland
2006 Listamaður mánaðarins maímánuði í Gallerí Lind
2006 Mannleg Náttúra Lux Tech Center Lúxembourg
Samsýningar:
1985 SALÍ sýning, Gerðuberg, Reykjavík
1994 NK Lillehammer, Noregur
1995 Taktana heim, Við Hamarinn, Hafnarfjörður
1996 Miðbæjarhúsinu Hafnarfirði, Lúra undir jökli Hornafirði, Skotin í Skruggusteini , Skruggusteini í Kópavogi, List gegn vímu ° Geysishúsinu , 8 plús 40 gera 48 Gallerí Fold og Englar og bjöllur Smíðar og skart Reykjavík.
1997 Útþrá , Skruggusteinsmeðlimir sýndu í ýmsum fyrirtækjum í Kópavogi
2002 Sköpun, Gerðarsafn Kópavogi
2003 Creation, SophiaAntipolis, Frakkland
2005 Forces de la terre, forces de l'éspirit, Strassbourg, Frakkland
Frekari upplýsingar um hótelið má finna á vefsíðunni www.hpb.lu og á heimasíðu Guðrúnar www.rbenedikta.com



