Sýningin Þetta vilja börnin sjá í Nýheimum
Um daginn heimsóttu krakkarnir frá Leikskólanum Nýheima með kennara sínum til að skoða sýninguna "Þetta vilja börnin sjá". Sýningin hefur vakið athygli þeirra sem hana hafa heimsótt enda er um að ræða skemmtilega sýningu þar sem sjá má myndskreytingar í úr íslenskum barnabókum. Sýningin er opin út þennan mánuð og þeir sem ekki hafa látið að því verða að leggja leið sína í nýheima til að bera sýninguna augum ættu að gera það hið fyrsta. Þessi sýning er liður í starfsemi Menningarmiðstöðvar sem miðstöðvar bókmennta á austurlandi. Að sögn Bjargar Erlingsdóttur forstöðumanns menningarmiðstöðvar þá er þessi sýning ekki aðeins fyrir börn, verkefnin eru fjölbreitt, vel unninn og áhugaverð fyrir alla aldurshópa.
Upphaflega var sýningin sett upp í Gerðubergi en á þessu ári falaðist Menningarmiðstöðin eftir því að sýningin yrði send út á land og þá fyrst í Nýheimum.



