Menning
Söfn og setur Austurlandi
Söfn og setur Austurlandi

12.07.2003

Söfn og setur frá Skaftafelli í Öræfum til Vopnafjarðar

Út er komin bæklingur með upplýsingum um 24 söfn og setur á Austurlandi. Bæklingurinn er bæði á íslensku og ensku og sýnir vel fjölbreytnina í safnaflóru á Austurlandi.

Bæklingurinn var unnin að frumkvæði Menningarráðs Austurlands í samvinnu við Markaðsstofu Austurlands og söfnin sjálf og er afrakstur samstarfsverkefnis safna allt frá Skaftafelli í Öræfum til Vopnafjarðar.

Markmiðið með útgáfu þessa bæklings er fyrst og fremst að gefa ferðamönnum og öðrum sýn yfir söfn og setur á Austurlandi og veita almennar upplýsingar um þau. Bæklingurinn auðveldar einnig safnafólki á Austurlandi að miðla upplýsingum um söfn í fjórðungnum.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica