Menning
Norðurljósablús 2007
Norðurljósablús 2007
Jump4Joy

02.03.2007

Breyting á dagskrá Norðurljósablúss

Sú breyting verður á dagskrá Norðurljósablúss í kvöld að tónleikar Blúsmönnum Andreu og Kentár falla niður. Þetta er vegna veðurs, aflýst var flugi sem þessar hljómsveitir áttu að koma með til Hornafjarðar. Pálmi Gunnarsson og félagar í Park Project eru hinsvegar á leiðinni akandi og munu að öllu óbreyttu leika á tónleikum í Sindrabæ í kvöld.. Hljómsveitin Grasrætur leikur á Víkinni í stað Kentárs og tónleikar Mood verða á sínum stað á Kaffi Horninu.
Eftir að park Project hefur lokið sér af í Sindrabæ í kvöld verður þar allsherjar blúsdjamm, bærinn er fullur af spilurum og söngvurum sem munu skemmta sér og öðrum fram eftir kvöldi.

Dagskráin á laugardag og sunnudag verður óbreytt.

Sjá dagskrá

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica