Norðurljósablús 2007 haldin í annað sinn
Fréttatilkynning: Hornfirska skemmtifélagið kynnir:
Blúshátíðin Norðurljósablús verður haldin í annað sinn á Höfn 1. - 4. mars n.k. Aðalgestir hátíðarinnar er sænska hljómsveitin Jump 4 Joy og er þetta í fyrsta sinn sem sveitin leikur hér á landi. Nokkrir af helstu blús-tónlistarmönnum landsins koma fram á hátíðinni og leika á öldurhúsum Hafnar og í hinu fornfræga félagsheimili Sindrabæ. Á hátíðinni koma fram 36 innlendir og erlendir tónlistarmenn í 8 hljómsveitum. Meðal þeirra sem koma fram eru hljómsveit Pálma Gunnarssonar, Park Project en auk Pálma eru Gunnlaugur Briem, Kristján Edelstein, Agnar Már Magnússon og Hrund Ósk Árnadóttir í sveitinni. Andrea Gylfadóttir syngur ásamt blúsmönnum sínum, þeim Guðmundi Péturssyni, Haraldi Þorsteinssyni, Jóhanni Hjörleifssyni og Einari Rúnarssyni. Þá kemur hljómsveitin Kentár til Hafnar í annað sinn og að þessu sinni leikur hinn goðsagnakenndi gítarleikari Björgvin Gíslason með Kentárum. Bergþór Smári kemur með hljómsveit sína Mood og æringjarnir í VAX spila einnig á blúshátíðinni. Síðast en ekki síst má nefna nýliðana í Grasrótum frá Hafnarfirði og heimamennina í Mæðusveitinni Sigurbirni sem spila opinberlega í fyrsta sinn á Norðurljósablús.
Ómissandi þáttur á Norðurljósablús er blúsdjamm. Það verður á föstudag og laugardag frá 16-19. Garðar Harðarson blúsari og tónlistarkennari á Stöðvarfirði leiðir djammið og allir geta fengið að taka í hljóðfæri og djamma.
Hornfirska Skemmtifélagið starfar innan Ferðaþjónustuklasa Hornafjarðar. Félagið hefur undanfarin ár sett upp tónlistarskemmtanir með þátttöku hornfirskra listamanna á Hornafirði og vinnur einnig að því að flytja listamenn á svæðið, heimafólki til ánægju og gleði en einnig til aðlaða ferðafólk á staðinn utan hefðbundins ferðamannatíma og auka veltu í þeirri grein. Samstarfsaðilar Hornfirska skemmtifélagsins á Norðurljósablús eru Veitingahúsið Víkin, Kaffi Hornið, Vatnajökull Travel, Flugfélagið Ernir og Sveitarfélagið Hornafjörður.
Horfirska skemmtifélagið hlaut Menningarverðlaun Hornafjarðar fyrir árið 2006. Í umsögn menningarmálanefndar Hornafjarðar segir að Skemmtifélagið sé einn af hornsteinum menningarlífs á Hornafirði, starf félagsmanna sé góð kynning fyrir svæðið og gestir sem sækja viðburði Hornfirska skemmtifélagsins komi víða að.



